Merkilegt hvað tíminn líður alltaf!
Verslunarmannahelgin var ljómandis ágæt, fórum til Bolungarvíkur og við höfðum það alveg hreint ágætt!

Kíktum tvisvar á skrallið...seinna skiptið var fullskemmtilegt þannig að heilsan var ekki upp á marga fiska á mánudeginum...sem leiddi það af sér að við lögðum ekki af stað fyrr en hálfsjö! Var ljómandis ágætt að komast heim en ÞAÐ sem maður var sybb á þriðjudeginum!
Læt fylgja með nokkrar myndir úr ferðinni


Maggi og feitabollan Bína!

Þórunn og Andri, kíktum í heimsókn til Rögnu frænku hans Magga á sun.kvöldið....sem endaði í svaaaðalegu skralli á Kjallaranum!


Hundurinn þeirra, lögregluhundurinn Dollar! Stórmerkilegt dýr fannst mér! Ekkert smá flottur, svo fékk hann grillkjöt sem hann gróf bara úti í garði í stað þess að éta það! Hahah sæi Tinu í anda gera það

noooot


Skjóta litlu bíbí.....

Við fórum upp á fjall.....

ohhh ýkkkkt sæt



ég snarstoppaði við þennan stein því ég sá beljuhausinn strax! Sér það enginn annar eða?

Svo reyndum við að komast inn í moldarkofa en það var kominn hengilás þar fyrir....issss

Núna er prófið í Haglýsingu eftir viku! m.a.s tæpa viku! lesa lesa lesa....nú þarf ég að hella mér í það! svo er Tenerife eftir réttttt tæpar 2 vikur!! jeijj!

Verður ÓSKÖP ágætt að komast í frí því ég er búin að vinna dáldið mikið undanfarið til að vinna mér inn fleiri tíma þar sem ég fæ frí vegna prófsins og fer auðvitað út líka....
Tina mín lenti í slagsmálum um helgina! Jú ég er að tala um 13 ára gigtveika hundinn sem kemst ekki alltaf upp nokkrar tröppur og þarf þá að bera hana upp! Það er greinilega enn líf í gömlu því hún lenti í svaka fight við sveitahund þegar pabbi tók hana með að sækja fellihýsið! Hún er í gúddí lagi en hún beit hinn hundinn í fótinn svo hann haltarði í burtu! Já það er víst aldrei of seint að byrja að slást! því þetta er hennar fyrsti fight, 13 ára....já...GO TINA

hehe...

Maggi og pabbi fóru í veiðiferð í gærmorgun og koma á fim.kvöld...svo ég ætti væntanlega að nýta tímann í að lesa! ....jú geri það á eftir! ikke spörgsmål!